22.4.2010 | 20:51
Fréttir um breytingu á flugi
Rétt til að láta ykkur vita af okkur. Fréttir um lokun á flugvöllum í Keflavík á morgun föstudag setur smá strik í reikninginn. Eyþór flaug til London í morgun og sækir sitt hjól og kemur svo til móts við okkur í Grimsby á mánudaginn. Hilmar leggur af stað með Arnarfellinu nú á miðnætti í kvöld fimmtudag. Hólmar og Eyrún áttu bókað far til London seinni partinn á morgun, en breyta fluginu og fara snemma í fyrramálið, vegna þess verður Eyrún að keyra að norðan í kvöld til að það takist. Þá getur verið að Guðmundur Björnsson komi tveimur dögum seinna út en hann ætlaði.
Þá er það spurningin um hvort flogið verður til London á mánudag en þá á meginluti hópsins bókað far. Ef ekki verður flogið frá Keflavík þá er líklegast að hópurinn fljúgi frá Akureyri!
Þetta skýrist allt saman og við vonum það besta.

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.